Geirstál — höfuðborgarsvæðið og nágrenni

Suða.
Smíði.
Viðgerðir.

Stál- og álsuða, sérsmíði og viðgerðir. Sendu mynd af verkinu og þú færð fast tilboð samdægurs — skriflegt, ekkert vesen.

  • Tilboð samdægurs
  • Föst verð á minni verkum
  • Skriflegt tilboð á öll verk
  • Reynsla úr skipaviðgerðum

Þjónusta

Lítil og meðalstór verk leyst hratt og almennilega. Sérðu ekki verkið þitt hér? Sendu mynd — það kostar ekkert að spyrja.

Kerruviðgerðir

Grindur, lamir, ljósafestingar, botnar og dráttarbeisli. Kerran kemst aftur í skoðun.

Verð frá 15.000 kr.

Handrið og stálgrindur

Handrið, stigar, svalalokanir og grindur — smíðað eftir máli og gengið frá á staðnum.

Skriflegt tilboð

Festingar og sérsmíði

Brackets, undirstöður, hillur og lausnir sem fást ekki úti í búð. Teiknað og smíðað eftir þínum þörfum.

Skriflegt tilboð

Álsuða (TIG)

Viðgerðir og smíði í áli — bátar, kerrur, pallhús og fleira sem þarf vandaða TIG-suðu.

Skriflegt tilboð

Ryðviðgerðir á stáli

Skipt um ryðgað efni í grindum, burðarvirkjum og búnaði — styrkt og varið gegn frekara ryði.

Verð frá 15.000 kr.

Jeppa- og aukahlutasmíði

Stuðarar, festingar, brettakantar, toppgrindur og sérlausnir fyrir breytta bíla.

Skriflegt tilboð

Verkin

Fyrir og eftir — verkin tala sínu máli.

Kerrur
Handrið
Álsuða
Sérsmíði
Ryðviðgerðir
Jeppar

Svona virkar þetta

1

Sendu mynd

Taktu mynd af verkinu og sendu á tilbod@geirstal.is eða í gegnum formið hér að neðan.

2

Fast tilboð samdægurs

Þú færð verð og tímaáætlun skriflega — sama dag. Engin skuldbinding.

3

Klárað og gengið frá

Verkið unnið á umsömdum tíma, myndir af útkomunni og rafrænn reikningur.

Um Geirstál

Á bak við Geirstál er Sindri — vélstjórnarnemi með bakgrunn í stálsmíði og skipaviðgerðum. Nafnið kemur úr fornmálinu: geir þýðir spjót, og restin útskýrir sig sjálf.

Hugmyndin er einföld: lítil verk eiga skilið sömu vandvirkni og þau stóru. Skriflegt tilboð, fast verð og frágangur sem heldur. Þú veist hvað verkið kostar áður en það byrjar — og þér er svarað samdægurs, ekki í næstu viku.

  • ÞjónustusvæðiHöfuðborgarsvæðið og nágrenni
  • Netfangtilbod@geirstal.is
  • SvartímiSamdægurs
  • TilboðAlltaf skrifleg

Fá tilboð

Fljótlegasta leiðin: sendu mynd af verkinu beint á netfangið. Tilboðið verður nákvæmara með mynd.

tilbod@geirstal.is

Eða notaðu formið — það opnar tölvupóst með upplýsingunum þínum, og þú getur hengt mynd við áður en þú sendir.